veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans svar við mínu andsvari. Eins og þarf alltaf að minna á í þessari umræðu er það skýrt í lögum að nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar, sem á þá rétt á að nýta þá með sjálfbærum hætti. Það er hlutverk okkar hér inni og hins háa Alþingis og löggjafans að tryggja að ávinningurinn af því að leyfa nýtingu á þeim skili sér aftur til samfélagsins. Þá finnst mér að við þurfum að gera meira en að tryggja að ávinningurinn dugi fyrir þeirri þjónustu sem verið er að sinna í kringum atvinnuveginn sjálfan. Það gerum við með því, í þessu tilviki, eins og er verið að leggja til hér með leiðréttingu veiðigjalda, að það sé stuðst við rétt markaðsvirði þegar afnotagjald af auðlindinni er reiknað. Þess vegna finnst mér enn og aftur, ég hef komið inn á það hér í ræðustól áður, að mér finnst alltaf jafn sérstakt að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins afneiti markaðslögmálunum þegar að þessu kemur og vilji ekki styðjast við rétt markaðsvirði þegar afnotagjöldin af nýtingu auðlindarinnar eru reiknuð. Þess vegna spyr ég: Af hverju vill hv. þingmaður ekki að það sé stuðst við markaðsvirði þegar veiðigjöldin eru reiknuð þannig að við fáum hér leiðrétt veiðigjöld?