156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er náttúrlega innan gæsalappa þetta með rétt fiskverð eða rétt verð, sem er kannski stóra málið í þessu. Það er svolítið það sem málið snýst um, það sem við erum að ræða hér, rétt verð. Það er verið að nota markaðsverð í dag en síðan er greinilega spurningin sem hv. þingmaður kom inn á um rétt fiskverð, rétt markaðsvirði. Það er greinilega það sem deilan snýst um: Hvað er rétt í þessu? Það er algerlega þannig með þessa norsku leið sem um hefur verið rætt að það er bara einhver vitleysa að ætla að fara að bera veiðar á Íslandi saman við uppsjávarveiðar í Noregi. Þar eru önnur veiðarfæri og önnur verðmæti í hráefninu eftir árstíma og annað. Þannig að þetta þarf að dýpka töluvert og ég vonast til að tækifæri gefist í hv. atvinnuveganefnd til að dýpka þetta. Það þarf líka að taka þessa nálgun svolítið fyrir og fara í gegnum áhrifamat þessa frumvarps og hversu hratt hefur verið farið yfir í því. Það er það sem atvinnuveganefnd þarf að gera vegna þess að í áhrifamati frumvarpsins er ekki farið á dýptina í þessa hluti. Það er ábyrgð atvinnuveganefndar þingsins og þeirrar þinglegu meðferðar sem þar fer fram að taka virkilega vel á þessu. Ég reikna því með að sá umsagnarfrestur sem umsagnaraðilar fá í þessu máli verði mögulega aukinn, verði a.m.k. ekki jafn smánarlegur og hann var í samráðsgáttinni eins og öll sveitarfélög landsbyggðarinnar eða 26 og fleiri hagsmunaaðilar hafa komið inn á.

Hér er bara almennt um gríðarlega stórt og mikilvægt mál að ræða (Forseti hringir.) sem efnislega þarf gríðarlega mikla umræðu inni í atvinnuveganefnd.