156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:12]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Við erum um margt sammála. Mig langar aðeins að ræða um sérhagsmuni. Þegar maður les umsagnir við þetta frumvarp veltir maður fyrir sér þeim áhyggjum sem þar koma fram. Þær eru flestar ef ekki allar réttmætar og raunverulegar. Svo koma hér hv. þingmenn og ráðherrar og tala um sérhagsmuni, að hér sé stjórnarandstaðan að tala og að þeir sem hafa komið með athugasemdir við þetta frumvarp tali fyrir sérhagsmunum gegn almannahagsmunum. Þessi sveitarfélög sem hafa verulegar áhyggjur af þessu frumvarpi — er stjórnarmeirihlutinn í alvöru að segja að þau séu að tala fyrir sérhagsmunum þegar þau lýsa áhyggjum sínum af áhrifum þessa frumvarps? Eru það sérhagsmunir? Af þessum sveitarfélögum eru tíu sem eru með 30–50% hlutfall af staðgreiðsluskyldum launagreiðslum í sjávarútvegi, 30–50%. Eru menn að velta því fyrir sér hvernig menn hafi áhyggjur þegar 30–50% af tekjum þessara sveitarfélaga koma frá sjávarútvegi, bæði í veiðum og vinnslu? Ég tel einmitt að þessi sveitarfélög tali fyrir almannahagsmunum og mér þætti mjög fróðlegt að heyra skoðun þingmannsins á því. Mig langar jafnframt að spyrja hann hvort hann telji boðlegt, eins og stjórnarmeirihlutinn hefur talað hér, að halda því fram að þessi sveitarfélög séu að tala (Forseti hringir.) fyrir sérhagsmunum.