veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég heyri að við erum um margt sammála og höfum svipaðar áhyggjur og sveitarfélögin víðast hvar um landið, sérstaklega þau sveitarfélög sem eru í sjávarbyggð. Er það ekki einmitt þannig þegar álögur eru tvöfaldaðar að þá er líklegt að menn þurfi að bregðast við? Þarf hagræðing ekki að eiga sér stað og fjárfestingum að fresta þannig að jafnvel verði ekki af þeim? Þá á ég sérstaklega við smærri eða minni útgerðir og minni vinnslur. Það verður náttúrlega að taka það með í reikninginn að fjárfestingar kosta og fjárfestingar í nýrri tækjum eru oft upp á fleiri hundruð milljónir. Eru þessar minni vinnslur ekki í mestri hættu? Það væri fróðlegt að heyra álit hæstv. hv. þingmanns á því.
Svo er það varðandi samþjöppunina. Mér finnst hún blasa við og við heyrum nú þegar fregnir að þessi þróun er hafin. Hún mun væntanlega halda áfram. Telur hv. þingmaður að þetta frumvarp eins og það liggur fyrir ýti undir samþjöppun og er hv. þingmaður ekki sammála því einnig að hér sé þörf á meiri vandvirkni og minni asa?