veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka þingmanni fyrir fína ræðu. Gott að vita að formaður Sjálfstæðisflokksins sé búinn að koma sjónarmiðum ykkar vel á framfæri. Ég fór inn á það í minni ræðu hér fyrr í dag að Vestfjarðastofa sendi þingmönnum erindi þar sem hún benti einmitt á að núna sé sannarlega ástæða til að staldra aðeins við af því að þótt að stjórnarmeirihlutinn sé að gefa því gaum að þetta hafi breyst frá því að þetta var í samráðsgátt og þangað til þetta kom inn í þing þá sé það sannarlega ekki nóg og þau þurfi enn tíma til að skoða það.
En í ræðu þingmanns fór hún inn á fleiri auðlindir og þar sem ég kem úr landshluta sem t.d. framleiðir mikið af orku og öðrum auðlindaafurðum sem varða vind, orku og annað, þá langaði mig að spyrja hana: Hefði kannski verið skynsamlegra í umræðunni um auðlindagjöld að horfa á fleiri auðlindir með breiðari augum og úr meira þyrluflugi heldur en að hjóla bara í eina auðlind?