156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:27]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi hagsmuni sveitarfélaganna vil ég byrja á að segja að það er ekkert nema eðlilegt að allir horfi á mál sem þetta út frá sínum raunveruleika. Þar er oft talað um hagsmuni og þeir litnir neikvæðum augum, sem ég er nú ekki sammála. Hagsmunir skipta miklu máli. Mér finnst ekkert nema eðlilegt að mismunandi sveitarfélög rýni í það frumvarp sem fyrir liggur út frá sínu nærumhverfi. En það breytir því ekki að allt heildarsamhengið skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli, burt séð frá einstaka atriðum varðandi einstaka vinnslur og annað. Mér vinnst nú kannski ekki tími til að fara yfir þessa risastóru spurningu varðandi auðlindagjöldin í heild, nema kannski í seinna svari, en örstutta svarið er: Auðvitað er alveg áhugavert að hér er ein auðlind umfram aðrar tekin út fyrir sviga.