veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka þingmanni fyrir gott svar. Já, ég er talsvert hugsi yfir því hvers vegna þessi auðlind er tekin með svona skömmum fyrirvara og svona knappt fyrir, líka í ljósi þess að það er mikil andstaða við málsmeðferðarhraðann. Ég kem náttúrlega úr sveitarfélagi sem framleiðir mikla orku, það er mikil orka framleidd hjá okkur. Þar með hefur t.d. mikið verið fjallað um vindorku og mikill áhugi er á uppbyggingu vindorku. Auðvitað veltir maður fyrir sér hvort þetta þýði mögulega að farið verði úr einni auðlind yfir í aðra. Mig langar að spyrja hæstv. þingmann: Heldur hún að við þyrftum að hafa áhyggjur af því? Á núna að fara að taka auðlindaskatt af t.d. orkuvinnslu? Væri það kannski ekki bara eðlilegt? Hvort þá væri ekki gott að líta á þessar auðlindir í heild sinni og hvort ekki væri skynsamlegt að fara bara úr einni í aðra.