156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:30]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ef við byrjum á að ræða veiðigjöldin þá hef ég persónulega skilning á því að þar hafi verið stigið skref í viðleitni til að skapa þessa ákjósanlegu sátt milli þessarar ofboðslega mikilvægu atvinnugreinar þjóðarinnar og þjóðarinnar sjálfrar. Hvað það þýðir í raun og hvenær sátt er orðin sátt er svo auðvitað önnur lykilspurning. Að sjálfsögðu gengur ekki upp að bara í orði kveðnu sé eitthvað gert í sátt ef það er ekkert gert í sátt. Við þetta frumvarp sem liggur nú fyrir er algerlega augljóst að samráð er í algjöru skötulíki, gögnum er ekki til að dreifa og samtalið var afskaplega takmarkað. Það er ekki hægt að svara lykilspurningunum. Burt séð frá þessari stóru heimspekilegu spurningu hv. þingmanns sem er mjög góð, um hvað auðlindagjöld eru, hvað er auðlind og hvað ekki, þá held ég að sú vegferð að ætla að ganga freklega á auðlindagjöld í einhverri meintri sátt sé ofboðslega vond og muni ekki skapa eina einustu sátt.