156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:31]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir prýðisgóða yfirferð. Eins og kann að heyrast er röddin að byrja að dýpka því að ég er búinn að tala mig hásan hér í vikunni og ég er alltaf að biðja um það sama. Nú óska ég liðsinnis hv. þm. Hildar Sverrisdóttur um að halda áfram þessari kröfu, sem er auðvitað sjálfsögð í risastóru máli, um að fá einhverjar greiningar á áhrifum hringinn í kringum landið, byggðarlag eftir byggðarlag. Það er alltaf vísað í frumvarpið, þar sé þetta að finna. Þetta er ekki þar, hv. þingmaður. Þetta er ekki þar. Þar eru hins vegar fullyrðingar um að það séu greiningar en greiningarnar eru ekki þar. Þetta minnir á hluti eins og breytingu á úthlutun byggðakvóta, áhrif af kílómetragjaldi, niðurstöðu í afgreiðslu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þetta ber allt að sama brunni. Það fylgja engin gögn til að taka umræðuna alla leið.

Svo spurningin er þessi, vegna reynslu hv. þm. Hildar Sverrisdóttur, áður en röddin hverfur alveg: Hvaða verkfæri eru að verða eftir?