veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Auðvitað er það bara ótrúleg staðreynd að greiningar í þessu risastóra máli er í rauninni ekki að finna. Það virðist sem hæstv. ráðherrar hafi eingöngu tekið þessa örlitlu sneið af kökunni sem eru veiðigjöldin sjálf og horft á ríkissjóð í þeirri einföldu tilfærslu og að sú greiningarvinna sé látin duga. Þá eru eftir, eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir, sveitarfélögin, öll afleiddu áhrifin í alls konar afleiddri þjónustu og verslun og við þekkjum hvernig þetta virkar allt saman. Öll nýsköpunin, allar fjárfestingarnar.
Ég vil enda á að segja, þótt ég fari kannski betur yfir það í mínu seinna andsvari: Hvað með líka bara öll litlu fyrirtækin? Gott og vel að allir hafi kannski þessa risastóru aðila í huga (Forseti hringir.) en er búið að skoða hvaða áhrif þetta hefur á frekar lítil fyrirtæki víða um land? Ég get farið betur yfir það á eftir.