156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:34]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta heldur áfram. Jafnvel þótt leitað sé til reynslumestu þingmannanna eins og hv. þm. Hildar Sverrisdóttur þá er okkur bara skammtað það verkefni sem kalla má óvinnanlegt, sem er að taka einhverja efnislega djúpa umræðu um afleiðingar með engin gögn um mögulegar afleiðingar. Ef þetta væri fyrsta svona málið í vetur þá kannski hefði maður ekki svona miklar áhyggjur. Til að gæta sanngirni er rétt að nefna að hæstv. forsætisráðherra boðaði það í sinni kosningabaráttu að hún myndi hækka álögur á sjávarútveg. Hún hins vegar talaði um að hún myndi gera það á tíu árum í þrepum. Telur hv. þm. Hildur Sverrisdóttir að þau kosningaloforð hæstv. forsætisráðherra eigi eitthvað skylt við það frumvarp sem við ræðum hér?