156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:35]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar. Stutta svarið við því hvort þjóðinni hafi verið sagt satt í aðdraganda kosninga er nei. Hæstv. forsætisráðherra talaði mikið um þetta kerfi, talaði um fyrirsjáanleika, að greinin þyrfti að treysta því að hér yrðu engar kollsteypur, engar kúvendingar milli kosninga, að tekin yrðu örugg skref, að það væri hægt að stefna að tvöföldun veiðigjalds á áratug eða svo og það eru ekki þrír mánuðir liðnir, engin örugg skref, hellingskollsteypur og kúvendingar. Þannig að stutta svarið er nei.

Það sem ég vék að í mínu fyrra svari áðan, að litlu aðilunum, þá eru það yfir 900 aðilar sem greiða veiðigjald árið 2024, allt frá einyrkjum til stórra fyrirtækja sem við vitum vissulega af og öll umræðan tekur einhvern veginn svolítið mikið mið af. En hvað með þá í 27.–29. sæti? Grunnur ehf.? Stakkavík ehf.? Ætli þessi fyrirtæki hafi átt von á algjörri kúvendingu (Forseti hringir.) á sínum högum í boði hæstv. forsætisráðherra?