veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og verð að segja að mér þykir það sniðuglega uppsett og bendir hér á mjög mikilvægan punkt. Það er nefnilega því miður þannig og ég hef gert það að umtalsefni í stjórnmálum eða hef reynt að gera það — mér finnst það skipta afskaplega miklu máli, það sem ég kalla samhengi hlutanna. Hérna finnst mér hv. þingmaður koma með mjög góðan punkt. Ef við horfum kalt á hverjir eru stærstu hagsmunaaðilarnir í því að sjávarútveginum gangi vel, hverjir eru það og getur einhver haldið því fram, sér í lagi með þessari nálgun hv. þingmanns, að það sé ekki einmitt íslenska þjóðin? Hver annar er stærri hagsmunaaðili í því máli að við höldum áfram að vera eina landið í heiminum sem græðir fjármagn af sjávarútvegi til að halda úti velferð? Fyrir utan einmitt þennan mjög veigamikla punkt (Forseti hringir.) um þetta sjóðskerfi Íslands, sem við getum verið svo mikið stolt af og á ofboðslega mikið undir að þetta gangi vel.