156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:39]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir svarið. Það gleður mig að við erum klárlega skoðanasystur í þessu máli. Aðeins af sama meiði: Það er nú þannig að hækkun veiðigjalda mun ná langt út fyrir rekstrarreikninga sjávarútvegsfyrirtækja þar sem sjávarútvegurinn er grunnatvinnugrein á Íslandi og í raun og veru burðarás í atvinnulífi margra landsvæða þar sem myndast hefur mikil og blómleg atvinna út af sjávarútvegi.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort það geti verið, þegar þetta frumvarp er smíðað, að raunverulega hafi ekkert verið hugað að afleiddum áhrifum á byggðir landsins, áhrifum á nýsköpun, áhrifum á það hvar fólk kjósi að búa. Eða var það viljandi gert að það væri allt í lagi að fólk kysi að hætta að búa úti á landi þannig að Viðreisn gæti fengið fleiri til Reykjavíkur?