veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar. Ég held að því miður sé staðreyndin sú að þessar greiningar hafi ekki verið gerðar. Eins og ég fór yfir í mínu fyrra andsvari er vissulega hægt að taka þessa örþunnu kökusneið og segja hverju þessi hækkun muni skila í einhverjum krónum í ríkissjóð, bara í þeim auknu beinu viðskiptum, ef svo má segja. Allt hitt, öll hin risastóra kakan sem okkur á helst að vera umhugað um hér í þessum sal alla daga, hún virðist bara vera ákveðið spurningarmerki.
Ég hef spurt hér í pontu bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra hvort þau geti fullyrt að þetta frumvarp muni skila fleiri krónum í kassann en ekki færri þegar upp er staðið, hvort þau geti fullyrt að kakan stækki en ekki minnki þegar upp er staðið. Hvorugt þeirra gat svarað. Ég sá á vídeói á fundi hjá SF, að mig minnir, að þá hafi hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar sagt að þessar greiningar væru til. (Forseti hringir.) Eigum við þá ekki bara að vona að þær fari að koma í ljós? Eigum við þá ekki að vona að þær muni dúkka upp hjá hv. atvinnuveganefnd við umfjöllun málsins? Fyrst það er búið að segja að þetta sé til, (Forseti hringir.) eigum við þá ekki að trúa því?