156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:42]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég heyri nefnilega víða frá sjávarbyggðum um landið að fyrirhuguð breyting geti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútvegssamfélög sem reiða sig á greinina til atvinnu og tekjuöflunar. Tekjur margra sveitarfélaga byggja nefnilega að verulegu leyti á starfsemi og launþegum í sjávarútvegi. Þessar áhyggjur eru raunverulegar og vonbrigðin þess vegna mikil að ekki sé tekið mark á þeim sem þessi skattahækkun mun bitna hvað harðast á.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ríkisstjórnina hafa svarað því hvernig staðinn verði vörður um samkeppnishæfni fyrirtækja og samfélaga. Svo langar mig einnig að spyrja þingmanninn að því hvort hún telji að þetta frumvarp, þ.e. nái það fram að ganga, muni styðja við byggðafestu, stuðla að frekari nýsköpun og fullvinnslu afurða og þar með auka verðmætasköpun. Telur hv. þingmaður að nái þetta frumvarp fram að ganga sé það til bóta fyrir land og þjóð?