veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem innihélt nokkrar spurningar. Ég skal reyna að gera þeim ágæt skil. Í fyrsta lagi ætla ég að leyfa mér að segja, frú forseti, að þvert á hug hæstv. ríkisstjórnar og eflaust margra held ég að þetta frumvarp muni hafa mest áhrif á alla aðra en þá sem ég gef mér að hæstv. ríkisstjórn vilji fyrst og fremst að þetta hafi áhrif á. Það er í rauninni stutta svarið. Það er augljóst hér í umræðunni að það er búið að teikna upp þessi stóru, vondu fyrirtæki — ég ætla að leyfa mér að orða það þannig, frú forseti. Varðandi samhengi hlutanna og afleidd áhrif nýsköpunar á tekjur sveitarfélaga skiptir auðvitað miklu máli hvernig þessum fyrirtækjum gengur. Þau munu lenda á löppunum eins og yfirleitt. Ég hef ekki mestar áhyggjur af þeim. Ég hef áhyggjur af öllu hinu, (Forseti hringir.) eins og hv. þingmaður fór svo ágætlega yfir í sínu andsvari.