veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hennar seinna andsvar. Ég ætla að vera heiðarleg við hv. þingmann. Ég verð kannski rekin úr stjórnarandstöðunni. Það getur verið. Svar mitt við spurningu hennar er nei, ég held ekki. Ég skal svara af hverju. Ég held að þetta mál sé bara ekki nægilega vel unnið til þess að slík — ég veit ekki einu sinni hvaða orð ég á að nota — svona skuggamarkmiðið gætu átt sér stað. Það að við skulum auðvitað sjá merki um að vinnslur muni fara til Evrópusambandslandanna, er það niðurstaða sem ríkisstjórnin mun kunna illa við? Því skal ég ekki svara. En að það hafi vakað fyrir þeim við gerð þessa frumvarps; nei, ég ætla að vera heiðarleg, ég ætla að standa hér í þessari pontu og ég ætla að segja nei við því, ég held ekki. En frumvarpið er vissulega illa unnið. Þar sem hv. þingmaður minntist á stjórnmálaflokkinn Viðreisn ætla ég hins vegar að leyfa mér að segja eitt: Það að skattspor sjávarútvegs á Íslandi sé yfir 80% á landsbyggðinni, sem þau virðast svona skella svolítið skollaeyrum við, er það tilviljun? Ég ætla að segja nei við því.