156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:47]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Undanfarna daga hefur sjávarútvegssýningin í Barcelona, sem er eins konar heimsþing sjávarútvegsins alls staðar að úr heiminum, viðskiptamessa, staðið yfir. Ég verð að segja að ég hef heimsótt þessar messur í Boston og Brussel og maður fyllist alltaf stolti. Það er ótrúlegt hvað er horft til Íslands þegar við horfum á sérþekkingu í þessari grein og nýsköpun. Við höfum byggt upp eitthvað stórkostlegt þegar kemur að sjávarútveginum og það eru verðmæti sem við skulum halda í.

Sjávarútvegurinn nýtir okkar sameiginlegu auðlind, fiskinn í sjónum og auðvitað er sanngjarnt og réttlátt að greidd séu gjöld fyrir þá nýtingu. Gjöldin þurfa að sjálfsögðu að vera þannig að greinin geti borið þau. Það svigrúm, eins og hefur verið rætt hér í þessum þingsal, er misjafnt eftir stærð og eðli starfseminnar og það þarf alltaf að vanda þegar við erum að horfa á auðlindagjöld. Það þarf alltaf að vanda útfærslur og hugsa þær til langs tíma. Auðlindagjöld mega aldrei vera viðbrögð við einhvers konar tekjumissi ríkissjóðs eða annars. Það þarf fyrirsjáanleika í slíku og það er það sem við erum að horfa á með góðri útfærslu hér.

Það hefur sérstaklega verið fjallað á þinginu um mikilvægi þess að kalla eftir greiningum um áhrif á landsbyggðina. Ég ætla að taka undir það mikilvægi enda hafa fjölmörg sveitarfélög lýst yfir áhyggjum sínum. Þá munu kannski sumir spyrja: Eru íbúar landsbyggðarinnar í raun og veru á móti því að það sé greitt auðlindagjald? Finnst þeim ábati til þjóðar ekki vera mikilvægur? Ég ætla að segja nei, en auðvitað hafa margir áhyggjur af áhrifum á sitt samfélag, atvinnu, tekjur sveitarfélaga, verðmæti fasteigna ef útgerð dregur saman vegna hærri gjalda. Það er eðlilegt. Við skulum yfirfæra þetta á höfuðborgarsvæðið. Myndi Garðabær fagna hækkun gjalda á stórfyrirtæki eins og IKEA og Marel ef það gæti þýtt að þau færu annað og myndu skerða tekjugrunn þess sveitarfélags? Líklega ekki, og þó væru áhrif þess miklu minni, enda er öll þjónusta og aðgengi að störfum allt annað í Garðabæ heldur en úti á landi.

Við vitum að það er langt frá því að vera öruggt að hækkun veiðigjalda, eins og fjallað er um, muni hafa þau áhrif að það verði skorið mikið niður. Það er þess vegna sem kallað er eftir greiningum og gögnum, til að vita hverjar áhætturnar eru. Það eru hins vegar engar tryggingar í þessu frumvarpi fyrir því að svo raungerist ekki. Ef niðurskurður verður, ef vinnslur loka og annað þá er erfitt að snúa því við. Þess vegna erum við dálítið að horfa á hérna hversu mikið er hægt að hækka gjöld eða fá aukatekjur af greininni án þess að skapa hvata til niðurskurðar. Við erum að horfa á hverjar leiðirnar eru og útfærslurnar sem geta valdið sem mestum ábata, haldið í samkeppnishæfni greinarinnar án þess að valda samdrætti sömuleiðis.

Þá langar mig að fjalla um loforð ríkisstjórnarinnar um að það eigi að nýta þessar auknu tekjur í vegaframkvæmdir á landsbyggðinni. Samkvæmt lögum um opinber fjármál er ekki hægt að tengja þetta tvennt saman. Því skiptir ótrúlega miklu máli að við hugsum þetta til enda því að eitt af því sem hefur einkennt vantraust þegar við tölum um sjávarútveginn og aðrar auðlindagreinar er oft að það er sagt að við ætlum að gera eitt og niðurstaðan er einhver allt önnur. Þess vegna vil ég hvetja ríkisstjórnina til þess, ef ætlunin er að skilyrða hluti með þeim hætti að við séum að fá auknar tekjur og beinum þeim í ákveðnar fjárfestingar, að horfa t.d. á stofnun auðlindasjóðs sem hefur þá það skilgreinda hlutverk að fjárfesta í ákveðnum innviðum og öðrum framtíðarverkefnum sem geta skilað samfélaginu ábata langt inn í framtíðina, ekkert ólíkt því sem Norðmenn hafa gert með sinn olíusjóð.

Virðulegi forseti. Við þurfum bæði aukinn ábata til þjóðarinnar og við þurfum líka blómstrandi byggðir. Hækkun veiðigjalda þarf að styðja við það. Við megum ekki fórna öðru fyrir hitt.