156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:53]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir ágæta ræðu. Fyrst vil ég nefna þetta sem hún kom inn á með Barcelona og sjávarútvegssýninguna þar. Maður er búinn að heyra af þessari sýningu og hversu vel hún tókst til að mati þeirra fjölmörgu sem þar voru. Það sem vakti athygli manna kannski enn og aftur var að í þetta sinn var enginn fulltrúi, getum við sagt, úr pólitíkinni á sýningunni. Sjávarútvegsráðherra sá sér ekki fært að mæta. Það hefur oft vakið undrun mína og ég held að það sé nauðsynlegt fyrir þingið að skoða þetta út frá því að til þess að ná þessari tengingu, raunverulegu tengingu við greinina sem manni finnst skorta á í þessari almennu umræðu þá fari fulltrúar þingsins, fulltrúar flokkanna fari þarna saman og kynnist því og sjái af eigin raun hvernig staðan er.

Það er mikið talað um þessa réttlátu leiðréttingu og viðbrögðin held ég að verði alveg ljós. Það verður hagræðing og frekari sameining og yfirtaka. Svo er þetta svolítið af hálfu stjórnarliða réttlætt með því að þeir hafi vilja meiri hluta almennings með sér í skoðanakönnunum. Nú hefur hv. þingmaður starfað á vettvangi auðlindanýtingar í orkumálum og þekkir vel til hversu flókið umhverfið er. Við þekkjum það þingmenn hversu flókið er að koma sér inn í þessi mál svo vel sé, að ná utan um skilning á þessu. Ég held að ef almenningur væri spurður hvort það ætti ekki að lækka laun þingmanna um 25% og fækka þeim um svona 20–30% þá myndu örugglega 70% segja já. En hefur almenningur einhverjar forsendur (Forseti hringir.) í svona einföldum skoðanakönnunum til að leggja faglegt mat á þá grundvallarspurningu sem liggur til grundvallar? Nú ætla ég ekki að gera lítið úr vilja almennings. (Forseti hringir.) En þetta eru flókin mál og mig langar aðeins að fá vangaveltur um það.