veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir spurningarnar, byrja á því að segja að ég tek undir það sem hv. þingmaður kom inn á varðandi það að þekkja og kynnast þessari grein vel. Það er ótrúlegt og maður upplifir það svo sterkt á svona sýningum hversu mikils virði greinin er og alúðina sem hefur farið í að rækta viðskiptasambönd og annað. Ég held að við séum að glíma við þetta í öllum auðlindagreinum, sama hvort það er sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn, orkan, að það skiptir svo miklu máli að þingmenn og bara þjóðin öll tengist þessum greinum betur því þetta eru okkar mjólkurkýr að svo mörgu leyti.
Þú spyrð um forsendur almennings til að meta hlutina. Ég held að almenningur upplifi óréttlæti í samhengi við framsal veiðiheimilda, í samhengi við arðgreiðslur og annað og ég held að veiðigjöld eða gjaldtaka í greininni geti verið liður í því að ná sátt ef það er gert á skynsamlegum forsendum og þar eru greiningar og gögn gríðarlega mikilvæg. Ég hefði talið, af því að ég hef minn bakgrunn í auðlindamálum, miklu heppilegra að þingheimur fengi þetta þing núna til þess að fjalla um mál, til að lesa yfir gögn og greiningar og svo væri verið að taka þetta betur fyrir í haust af því að þessar útfærslur geta haft mikil áhrif á hver niðurstaðan raunverulega verður. Ég held að það sé flókið fyrir okkur flest að setja okkur hratt inn í svona mál nema kannski vera með ákveðinn bakgrunn þeim tengdum. En ég held að þessi skilningur sé gríðarlega mikilvægur til þess (Forseti hringir.) að góðar ákvarðanir séu teknar sem skapa stöðugleika því, aftur: Auðlindagjöld eiga aldrei að blakta í vindi. (Forseti hringir.) Þau eiga að vera eitthvað sem getur staðist tímans tönn.