veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er áhugavert einmitt að heyra þetta frá hv. alþingismanni sem hefur þekkingu á þessu sviði og reynslu af að vinna á þessu sviði og taka þátt í hinni almennu umræðu í samfélaginu er lýtur að orkumálum. Ég velti því fyrir mér hvort það sé tímabært að þingið fari að skoða einhverja aðra nálgun í þessu þar sem almenningur verður eiginlega meira með beinum hætti var við það á eigin skinni hvað þetta þýðir að fá arð af auðlindum sínum. Auðvitað er núna bara verið að tala um að auka skattheimtu sem fer beint í ríkissjóð. En með því að hlutbinda mögulega almenning sem eigendur í flestöllum fyrirtækjum í sjávarútvegi upp að einhverju marki, með einhverjum reglum, mynda um það einhvers konar þjóðarsjóð sem stýrt er af fulltrúum almennings í landinu en ekki ríkisvaldsins og í þennan sjóð safnast síðan (Forseti hringir.) fjármunir og arður úr þessum fyrirtækjum, þá eftir kannski ekki svo langan tíma verður mögulegt að (Forseti hringir.) fara að greiða hreinlega almenningi á einhverjum aldri út beinan arð, jafnvel án skatts, inn um lúguna hjá þeim á hverju ári.
(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að virða tímamörk.)