veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sínar hugleiðingar og spurningu. Ég held að það sé alveg rétt að það skiptir máli að efla þessa tengingu. Það skiptir máli í samhengi við auðlindasjóð og það skiptir máli í samhengi við skilning á því hvernig verðmæti verða til. Ég get sagt með mína tengingu við landbúnað að auðvitað skapast öðruvísi þekking og skilningur. Ég held að það sé að sumu leyti það bil sem við erum að reyna að brúa hér í þingheimi á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis, að það er minni skilningur á því hversu stór hluti sjávarútvegurinn er af samfélögum á ólíkum stöðum á landinu. Öll þessi tenging er því til góða. Bara til að undirstrika það aftur þá held að það séu margar leiðir færar til að auka þennan ábata og að það sé gríðarlega stórt tækifæri í því að við horfum á það í samhengi við sérstakan auðlindasjóð og löngu tímabært.