veiðigjald.
Frú forseti. Um 80% af atvinnutekjum vegna veiða og vinnslu renna til einstaklinga sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Fiskvinnslan er lykillinn í verðmætasköpun í sjávarútvegi, með því að vinna hágæðavöru úr því hráefni sem við veiðum. Verði rekstrargrundvelli hennar raskað, sem þessi breyting hefur svo sannarlega í för með sér, mun sú verðmætasköpun að mörgu leyti fara úr landi. Fyrirtæki eins og Lýsi, Kapp og Ístækni hafa lýst áhyggjum sínum af þessu máli. Telur hv. þingmaður að ráðstöfun þessi muni höggva í rekstrargrundvöll fiskvinnslunnar og þeirrar verðmætasköpunar sem þar á sér stað?