156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:02]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu og ég held að hún sé ein af þeim sem við erum að leita svara við. Vissulega hefur mikil hagræðing í okkar grein verið vegna samþættingar við vinnsluna. Það hefur verið ólíkt því sem við sjáum t.d. í Noregi þar sem vinnslan er staðsett annars staðar. Þessi samþætting hefur reynst okkur vel þegar við horfum t.d. á nýsköpun og þegar við horfum á fjölda starfa á landsbyggðinni, þannig að þetta er eitt af því sem skiptir máli. Ef vinnsla færist úr landi er ekki svo auðvelt að taka skrefið til baka. Þess vegna erum við að horfa á þetta út frá því sjónarmiði að í upphafi skuli endinn skoða. Þess vegna erum við að kalla eftir gögnum. Það er ekki vegna þess að einhverjir séu á móti því að sjávarútvegurinn skili meiri ábata til samfélagsins heldur til að tryggja að ákvarðanataka sé upplýst og að við náum utan um það að fá meiri ábata án þess að skapa stóra hvata til að atvinnuvegir á landsbyggðinni verði fyrir miklum áhrifum. Það er þetta með aukinn ábata og blómlegar byggðir, við verðum að ná báðum markmiðunum.