veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er innilega sammála því að í upphafi skuli endinn skoða, það á svo sannarlega við í þessu máli. Það má ekki gleyma því mikilvæga hlutverki sem fiskvinnsla spilar þegar kemur að því að tryggja atvinnu í landinu. Fiskvinnslustörf eru kvennastörf og líklega er um að ræða eina launahæstu kvennastétt landsins. Í frumvarpinu er tilgreint að þetta hafi engin áhrif á kynin en það er auðséð að þessi breyting stenst ekki kynjaða hagstjórn. Oddi hf. er t.d. burðarás í atvinnulífi Patreksfjarðar og er eina fiskvinnslan á sunnanverðum Vestfjörðum. Telur hv. þingmaður að hin norska leið ríkisstjórnar okkar Íslendinga muni ýta undir frekari verðmætasköpun í fiskvinnslum landsins?