veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur fyrir spurninguna. Varðandi áhrif á kynjamál og kynjaða hagstjórn þá er þetta vissulega eitthvað sem þarf að skoða í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar á jafnréttismál heilt yfir. Ég tel mikilvægt að skoða þetta og augljóst að fullnægjandi greining hefur ekki verið unnin hvað þetta varðar. En varðandi það hvort norska leiðin hafi áhrif á verðmætasköpun í vinnslunum þá er það stóra spurningin sem verið er að horfa á hér, hvort það að fá hærra verð og aukið veiðigjald í gegnum það, með því að miða við þetta norska verð, leiði til þess að vinnslan flytjist annað sem mun þá hafa áhrif á mögulega verðmætasköpun og nýsköpun sem tengist vinnslunum. Þetta er ein af þessum grundvallarspurningum sem fyrir liggja. Ég legg aftur áherslu á það, sem hefur líka margoft komið fram í þessum sal, að það eru tækifæri til að fá aukinn ábata. Ég fagna þessari umræðu um veiðigjöld og ég tel að við getum náð skynsamlegri niðurstöðu með góðum gögnum og greiningum og skýrri langtímasýn.