156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:06]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka þingmanninum kærlega fyrir ræðuna. Ég er aðeins að velta því fyrir mér að við sjáum dálítið mikið af því að verið sé að flagga skoðanakönnunum um vilja þjóðarinnar til þess að taka frekari veiðigjöld en eru til staðar í dag. Ég velti fyrir mér hvernig við ætlum að mæla þessa hluti ef við ætlum ekki að vera að mæla einhverja punktstemningu á hverjum tíma heldur mögulega raunverulegan vilja þjóðarinnar. Í þessu tilfelli boðum við t.d. hagaðila fyrir atvinnuveganefnd og þá veltir maður fyrir sér: Hver er þá fulltrúi borgaranna? Hver er rödd borgaranna? Eru það bara við þingmenn eða væri möguleiki að finna þetta með einhverjum öðrum hætti?

Ég man eftir því, og nú þekkir hv. þingmaður það ágætlega, t.d. við undirbúning að valkostagreiningu við rammaáætlun að þá er faghópur 3 notaður til að kanna samfélagsleg áhrif. Hann gerir það gjarnan með samtali eða skoðanakönnunum. Telur þingmaður að eitthvað slíkt geti komið til greina í þessu tilfelli?