156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:08]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Guðmundi (ÓA: Adolfssyni.) — Adolfssyni, biðst afsökunar — fyrir góðar spurningar. Ég sem hér stend tel að það sé augljóst mál að heilt yfir í samfélaginu okkar hafi kraumað óánægja varðandi sjávarútveginn og þessa sátt. Ég held að það sé ekkert launungarmál að hún tengist tvennu. Hún tengist framsalinu sem er kannski dæmi um lagabreytingu þar sem hefði einmitt þurft meiri greiningar og gögn um framtíðaráhrif. Upphafleg úthlutun kvóta skapaði djúp sár sem við erum enn þá að takast á við þrátt fyrir að greinin hafi blómstrað. Síðan er líka þessi gjaldtaka. Ég held að skoðanakannanir nái alveg ágætlega utan um það að almenningur vill sjá meiri ábata af þessari mikilvægu grein. En ég held að það séu tækifæri til að hlusta á röddina hins vegar, eins og við erum búin að vera að ræða hér í þingsal, meira niður í sveitarfélög. Þá aftur: Ég held að almenningur sé heilt yfir til í að greiða meira en fólk vill auðvitað ekki að það hafi neikvæð áhrif á sitt nærumhverfi. Á þessa byggðagreiningu þurfum við að beina sjónum okkar sérstaklega til að fólk skilji þetta betur og það á líka við um fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu. Hver eru stærri áhrifin sem of djörf hækkun getur leitt af sér? Ég held að með gögnum og greiningu sé hægt að ná fram vilja sem birtist í skoðanakönnunum um ákveðna skynsamlega hækkun, sem kemur ekki niður á rekstrargrundvelli útgerðarinnar til langs tíma (Forseti hringir.) heldur tryggir sömuleiðis að við séum með samkeppnishæfan sjávarútveg.