veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið og áhugaverðar vangaveltur. Ef maður horfir á kvótasetninguna eins og hún er í dag þá hefur lítið breyst á milli einstakra landshluta yfir tiltölulega langt skeið og verið nokkuð stöðugt. Ég velti þá fyrir mér hvort við eigum í rauninni að láta óánægju ráða því — ef við tökum bara dæmi sem þetta, ef við gefum okkur það að áhrif af þessu frumvarpi verði þau að t.d. ákveðnar útgerðir í Norðvesturkjördæmi ákveði að söðla um og selja og kvótinn geti þá væntanlega farið eitthvert annað. Er þá yfirleitt einhver lausn fólgin í því í rauninni að búa til sama ástandið á nýjum stað og við höfum verið að glíma við jafnvel í yfir áratugi?