veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Lykillinn í auðlindagjöldum er að tryggt sé að greinar geti staðið undir þeim og þau séu hugsuð þannig að það sé ekki verið að hreyfa þau fram og til baka eftir einhverri vinstri hægri pólitík, þau séu reiknuð út með þeim hætti að greinin beri þau til lengri tíma. Það er mín ósk að við berum gæfu til að taka slíkar ákvarðanir líka með sjónarmið byggðarinnar í Norðvesturkjördæmi og annars staðar í huga. Það er það sem við erum að reyna að gera í þessum þingsal. Það er að passa upp á það að sú breyting sem hæstv. forsætisráðherra talaði um að ætti að gerast á tíu árum, en er nú boðuð á svo stuttum tíma, leiði ekki af sér dramatísk byggðaáhrif heldur séum við að fá meiri ábata og pössum jafnframt upp á að við séum með blómlega byggð í landinu og þessa verðmætasköpun, þetta víða net sem sjávarútvegurinn er um allt land. Það er okkar verkefni.