veiðigjald.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við stórt og mikilvægt mál sem sjávarútvegur er og áhrif sjávarútvegs í íslensku samfélagi. Hér er frumvarp sem hefur áhrif á það hvernig þessi grunnatvinnuvegur þjóðarinnar tekur þátt í því að skapa velferð í þessu samfélagi. Við þurfum þá að hafa það í huga — maður fær svo stuttan tíma. Þetta er stórt og mikið mál þegar maður þarf að velja tíma sinn vel hérna, hvað maður fer yfir, þannig að mig langar aðeins að tala um vinnubrögðin og nálgun stjórnarmeirihlutans í þessu máli, hvernig hæstv. ráðherra leggur það upp. Það er komið með þetta mál eins og þetta sé ekki neitt annað en bara smá leiðrétting; þetta er bara sanngjarnt og þessir stóru geta alveg borgað þetta, eins og þetta sé svona. Svo eru bara engin gögn, ekkert samtal, engin heimavinna unnin til að sjá hvort málið sé svona einfalt eða hvort það hafi einhver stórfelld áhrif á byggðirnar í landinu.
Fyrst þegar málið kemur fram, svona illa undirbúið og illa rökstutt, með einhverjum popúlískum frösum, koma sveitarfélög landsins og hafa verulegar áhyggjur. Þær áhyggjur virtust vera réttmætar af því að hæstv. ráðherra gerði breytingar á frumvarpinu. Hverjar voru áhyggjurnar? Það hefur áhrif á litlar og meðalstórar útgerðir, hefur áhrif á byggðarlögin út frá hvernig þessum útgerðum myndi reiða af í þessum breytingum, en það voru gerðar breytingar. Nú hafa þessar breytingar verið kynntar og enn berast okkur skilaboð frá byggðunum, sveitarfélögunum sem höfðu áhyggjur af þessu og segja: Gott og vel. Við erum ánægð að það var hlustað en það var ekki nema bara smá lagfæring gerð. Við vitum ekki enn þá hvort hún sé næg. Við vitum ekki enn þá hver áhrifin eru. Það er ekki nógu langt gengið og það er ekki enn þá stafkrókur um áhrif á sveitarfélögin, það stendur bara að þetta hafi ekki bein áhrif á sveitarfélögin en ekkert um óbeinu áhrifin eða neitt. Þetta er alvarlegt og því verð ég bara að þola það að vera kallaður varðhundur útgerðarinnar til að standa vörð um þetta og mun ég ekki láta mitt eftir liggja í því.
Annað sem mig langaði að koma inn á í lokin er að það er sagt að þetta sé lykilatriði til að bjarga byggðunum og innviðavandanum í samfélaginu, að landsbyggðin hafi setið eftir. Ég tek undir það, innviðaskuldin er mikil. En við erum að tala hér um það að skattspor sjávarútvegsins er milli 80 og 90 milljarðar á ári. Ef við tökum að yfir 80% af aflaheimildunum og veltunni í sjávarútvegi er á landsbyggðunum, í þessum byggðum, þá er þetta kannski um 60–70 milljarða skattspor í samfélögunum úti á landi. Þar eru fjármunirnir í sjávarútveginum.
Veiðigjöldin eiga að fara í 17 milljarða með þessu. Ríkisstjórnin segir — útgjaldasjúk ríkisstjórn, það eru ekkert nema útgjöld sem við heyrum frá þessari ríkisstjórn en ef byggðirnar eiga að fá vegina sína lagaða og vetrarþjónustuna sína og þjónustuna á vegunum þá þurfum við að setja grunnatvinnuveginn í byggðunum í hættu. Við vitum ekki áhrifin, við ætlum samt að gera þetta, sækja 17 milljarða til þeirra en byggðirnar skulu samt bara fá 5,8 milljarða. Það er nú allt og sumt af öllu skattsporinu og öllum veiðigjöldunum sem er verið að taka úr byggðunum. Svo er ekki einu sinni komið í ljós í hvaða byggðir eða hvaða samgönguframkvæmdir þessir 5,8 milljarðar eiga að fara, sem eru bara smáaurar miðað við önnur útgjöld sem þessi ríkisstjórn er búin að ákveða án þess að eyrnamerkja það einhverri skattahækkun. Nægar eru nú skattahækkanirnar að vísu líka hjá ríkisstjórninni. Það kemst ekkert annað að nema aukin útgjöld og auknir skattar. Aukin útgjöld, skattar, skattar, skattar.
Svo legg ég að lokum til að við búum til nýja mannanafnanefnd til þess að fara yfir öll þau nöfn sem þessi hæstv. ríkisstjórn gefur þessum sköttum sínum öllum.