156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:19]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Fjórir í andsvar, aðeins ein mínúta, þannig að ég verð að breyta aðeins nálguninni. Ég ætla að byrja á spurningunni: Telur hv. þingmaður að það sem ég ætla að reyna að komast yfir að lesa á þessum sekúndum sem eftir eru séu í hans huga það sem kalla má greiningu á áhrifum frumvarpsins? Með leyfi forseta:

„Einnig tekur ráðuneytið undir hinar fjölmörgu ábendingar sveitarfélaganna um mikilvægi sjávarútvegsins í hinum dreifðu byggðum og mikilvægi þess að rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sé skýrt svo að fyrirtæki í sjávarútvegi geti sinnt sinni mikilvægu samfélagslegu ábyrgð og felst m.a. í heimild til að nýta hina sameiginlegu auðlind þjóðarinnar. Í frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar sem munu fela í sér veruleg neikvæð áhrif.“