veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að draga þetta fram, hvernig þetta er orðað í frumvarpi hæstv. ráðherra. Nei, þetta svarar engum spurningum um áhrifin eða að sveitarfélögin þurfi ekki að hafa áhyggjur enda hafa þau bara mjög miklar áhyggjur. Hv. stjórnarþingmenn hafa verið að koma hér ítrekað í ræðu til að tala um afleiðingar af samþjöppun og hagræðingu í sjávarútvegi. Þeir hafa gert það. Það hefur ekki neitt komið fram í þessu um hvort lítil og meðalstór fyrirtæki og jafnvel stærri neyðist einmitt ekki til að hagræða og fara jafnvel í aukna samþjöppun til að bregðast við þessu frumvarpi. Það kemur ekki fram. Þannig að það sem stendur í þessu frumvarpi býr til fleiri spurningar en svör. Hvað eru t.d. verulega neikvæð áhrif? Hvar er skurðpunkturinn milli (Forseti hringir.) neikvæðra áhrifa og verulega neikvæðra áhrifa?