veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var að vísu nánast orðrétt eins og ég hélt að það myndi vera, því miður. Það er nefnilega fullyrt að þessar greiningar á áhrifum frumvarpsins séu til staðar í frumvarpinu. Þeim finnst þó hvergi staður. Þetta heldur bara áfram með einhverjum svona texta, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu er aðeins verið að leiðrétta og skýra tiltekna hætti við útreikninga reiknistofns veiðigjalda og þar með áhrif fyrirtækja í sjávarútvegi til framtíðar. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að frumvarpið feli ekki í sér fjárhagsleg áhrif á tekjur eða útgjöld sveitarfélaganna.“
Á þetta að heita greining? Eigum við að átta okkur á því út frá þessum texta hvað er að fara að gerast í Grýtubakkahreppi, Dalvíkurbyggð, Norðurþingi, Langanesbyggð, Fáskrúðsfirði? Er þetta textinn sem á að liggja til grundvallar því að allir verði bara rólegir og sáttir?