veiðigjald.
Virðulegi forseti. Nú er það svo að fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi leggjast held ég með nokkuð óvenju þungum hætti á bolfiskfyrirtækin miðað við hvað ég hefði átt von á, alla vega miðað við þær umræður sem hafa verið síðustu ár um möguleika þess að hækka veiðigjöld. Nú er það svo að lítil og meðalstór fyrirtæki, sem fyrst og fremst eru í bolfiski, eru vissulega í Norðvesturkjördæmi en þau eru sannarlega líka í Grindavík, byggð sem á verulega mikið undir því að geta endurreist sig eftir náttúruhamfarir síðustu missera.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, þar sem hann er búsettur eða var búsettur þar og þekkir vel til, hvaða áhyggjur hann hefur af þeim fyrirtækjum sem þar starfa. Þau eru vissulega fjölbreytt. Eitt er í almenningshlutafélagsformi en önnur eru dæmigerð lítil og meðalstór fyrirtæki sem þessi verulega hækkun á þorski og ýsu mun væntanlega hafa veruleg áhrif á.