156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á mjög alvarlegan þátt í þessu máli. Það er þannig að hagræðingin í bolfiskinum hefur ekki verið jafnmikil og í uppsjávarfiski. Það má eiginlega segja að bolfiskvinnslan sé miklu kvikari en vinnslan í uppsjávarfiski. Það eru miklu fleiri lítil og meðalstór fyrirtæki í bolfisksvinnslu og það er erfiðara fyrir þau að hagræða og erfiðara fyrir þau að fá svona högg, að bregðast við því, hvað þá fyrirtæki sem hafa þurft að þola aukinn kostnað vegna jarðhræringa og annað. Ef þetta frumvarp verður að veruleika má ætla að í Grindavík fari á næstu fimm árum, en það er talað um að það taki fimm ár að byggja Grindavík upp að nýju, 2 milljarðar af veiðigjöldum út úr samfélaginu á ári. Ég er ekki að sjá 2 milljarða samgönguuppbyggingu í Grindavík á næstu fimm árum.