veiðigjald.
Frú forseti. Já, ég ætla aðeins að velta hlutunum fyrir mér með hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni sem kemur úr Grindavík. Ég bjó lengi í Vestmannaeyjum og þekki til sjávarútvegsins sem áhorfandi. Í okkar kjördæmi skiptist þetta kannski í tvo hluta, þ.e. uppsjávarveiði, sem einkennir veiðarnar á Höfn og í Vestmannaeyjum, og svo bolfiskveiði, sem er reyndar líka þar en kannski hlutfallslega í meira mæli á öðrum stöðum. Mig langaði að velta því fyrir mér með hv. þingmanni hver hann telur að áhrifin verði í þessum byggðarlögum. Telur hann að þetta hafi meiri áhrif í byggðarlögum með bolfiskafla að meiri hluta til eða með uppsjávarafla eins og í Vestmannaeyjum? Þeir hafa miklar áhyggjur af því í Vestmannaeyjum hvaða áhrif þetta hefur í sveitarfélaginu almennt séð, í fjárfestingum og uppbyggingu og nýsköpun.