156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit að hv. þm. Vilhjálmur Árnason er lögfræðingur. Mig langar aðeins til að velta því fyrir mér hvort hann hefði velt fyrir sér ákvæðum stjórnarskrárinnar í þessu sambandi. Nú var nefnt í ræðu hér áðan að ákveðnum stjórnmálaflokki, sem nú er í stjórn, þætti það bara mjög hentugt að taka þessar 15 fjölskyldur sem flokkurinn telur að eigi þessar aflahlutdeildir að mestu leyti — ég veit ekki hvað er hæft í því en þetta var orðað þannig. Þá vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann hafi velt fyrir sér jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ég tel mig vita að það er ekkert hægt að skattleggja bara Sigurð Jónsson, það verður að vera almenn regla. Skattarnir verða að vera almennir og gæta þarf jafnræðis. Það er nú aðeins komið inn á þetta í greinargerðinni á bls. 15. En ég spyr hvort hv. þingmaður, af því að ég veit að hann er lögfræðingur, hafi velt þessu fyrir sér, hvort kannski sé gengið of langt þarna. Þetta er auðvitað mjög sérgreint og fáir aðilar í raun og veru sem borga meginþorra gjaldsins.