156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:33]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta gæti verið á mjög gráu svæði, hvernig þessi skattlagning er sett á. Við þurfum ekki að deila um að þetta er skattur, Hæstiréttur Íslands sagði að veiðigjald væri skattur og það stendur í greinargerð frumvarpsins. Það er svolítið sérkennilegt þegar komið er fram með svona mál og svo er farið að benda á útgerðir í einstaka bæjarfélögum, að þetta hafi áhrif á þær, og þá er afslættinum breytt. Það er verið að stilla þetta af eftir því hvaða fyrirtæki falla þarna undir, af því að ársreikningar í fyrirtækinu eru opinberir og aflaheimildir í fyrirtækinu eru opinberar og annað slíkt. Og núna, eftir að þessar athugasemdir berast, þá er skattlagningu breytt. Þetta er líka svolítið skrýtin skattlagning. Við ætlum að setja þennan skatt á en við ætlum að gefa þessum aðilum afslátt af skattinum áður en hann verður lögfestur. Það er bara í sama frumvarpinu. Þetta er í besta falli mjög skrýtin og hæpin lagasetning.