veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Honum varð tíðrætt um þörf á betri og ítarlegri greiningu á áhrifum. Mig langar því að spyrja hv. þingmann, af því að sú ríkisstjórn sem hann studdi hér á síðasta kjörtímabili hafði áformað breytingu á veiðigjöldum, hækkun þeirra upp í 45%, og með þeirri breytingu að ekki væri hægt að telja veiðigjöld fram sem kostnað og draga hann frá: Þótti honum, af því að væntanlega hefur hann kynnt sér það frumvarp, sú greining á áhrifum sem þar kom fram betri og ítarlegri en sú greining sem lögð er fram með þessu frumvarpi? Það er mín skoðun að svo sé ekki en ég vildi fá hans mat á því. Og vegna þess að þingmaðurinn hefur verið hér töluvert lengi, og töluvert lengur en ég, þá langar mig líka að vita: Getur hann nefnt dæmi um 2 til 3 frumvörp þar sem að hans mati hefur verið framkvæmd mjög góð og miklu betri og ítarlegri greining á áhrifum en sú sem hér er gerð? Ég spyr til þess að hæstv. ríkisstjórn geti þá á milli umræðna komið með greiningu sem er jafngóð og sú sem er mest praktísk að mati hv. þingmanns.