156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek sérstaklega fyrir að gefa mér færi á að fjalla um þetta. Það er mikið talað um það að síðasta ríkisstjórn hafi ætlað að hækka veiðigjöldin og hvaða undirbúningur hafi verið í því. Það eina sem kom formlega frá síðustu ríkisstjórn varðandi veiðigjöld var að fá auknar tekjur. En það er alveg skýrt í huga okkar Sjálfstæðismanna að með því að lækka álögur á atvinnulíf og einstaklinga þá aukast skatttekjurnar, tekjurnar aukast með lægri álögum. Út af því að þá eru umsvifin í samfélaginu og fjárfestingargetan meiri. Þáverandi sjávarútvegsráðherra, Svandís Svavarsdóttir, setti hins vegar af stað Auðlindina okkar sem var allsherjarsamráð og söfnun upplýsinga, skilaði skýrslu og setti frumvarp í samráðsgátt byggt á öllum þeim greiningum og því samtali. Ég tel það bara allt önnur vinnubrögð en hér eru viðhöfð. (Forseti hringir.) En fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í þeirri ríkisstjórn sögðu að það frumvarp sem fór í samráðsgáttina yrði aldrei að veruleika.