veiðigjald.
Frú forseti. Nú ræðum við að því er virðist uppáhaldsfrumvarp stjórnarinnar, veiðigjaldafrumvarpið. Stjórnarþingmenn, langt umfram venju, hafa farið í fjölmargar ræður og hefur verið nokkuð kúnstugt að fylgjast með hversu roggin þau eru og hreykin þau virðast vera. Þá hefur mörgum stjórnarþingmönnum orðið tíðrætt um að málið njóti stuðnings 90% þjóðarinnar, eða jafnvel meira en það, hlutfalls þeirra sem vilja hækka veiðigjöldin. Það er greinilega komið að skuldadögum. Kannski má að einhverju leyti skilja þetta því að búið er, frú forseti, að byggja upp ógnarandúð á sjávarútveginum um langt árabil, ógnarandúð vil ég nefna það.
Það sem nauðsynlega þarf er að sjálfsögðu að skapa sátt um sjávarútveginn, þessa mikilvægustu útflutningsgrein okkar um langt árabil, grein sem hefur verið í fararbroddi nýsköpunar um land allt, ekki bara á sviði veiða og vinnslu heldur langt út fyrir það. Í raun og veru eru allir sammála um, frú forseti, að sjávarútvegurinn eigi að greiða ríflega til samfélagsins, sem hann gerir, ekki satt? Hér hefur margoft komið fram að hið svokallaða skattspor sjávarútvegsins sé vel yfir 80 milljarðar á ári. Fulltrúar margra sjávarbyggða hafa lýst áhyggjum sínum af afleiðingum þessa frumvarps.
Það hefur oft verið rætt um það hér í þessum ræðustól á undanförnum vikum hvort hér sé um skatt að ræða. Stjórnarliðar kalla þetta oft á tíðum leiðréttingu. Nokkuð hefur verið á reiki hvaða nafn á að gefa fyrirbærinu. Stjórnarþingmenn vilja einhverra hluta vegna kalla þetta leiðréttingu og vilja helst ekki heyra minnst á skatt í þessu samhengi. Það er ekkert nýtt, frú forseti, í þeim efnum að erfitt geti reynst að bera kennsl á skatta. Svo hugvitsamlega hafa stjórnvöld oft á tíðum klætt skattheimtu sína fyrir þegnunum. Lögfræðingurinn Gylfi Knudsen heitinn skrifaði um einkenni skatta í grein sinni „Ættarmark álögunnar“, sem birtist í riti tileinkuðu sextugsafmæli dr. Gauks Jörundssonar, og kemst svo að orði, um tilraun sína til að gera grein fyrir því hvað einkenni skatt. Hann lýsir þessu þannig, með leyfi forseta:
„En kvikindið“ — þ.e. skatturinn — „er gjarnt á að dylja eðli sitt líkt og trjónukrabbinn blygðan sína og því getur það átt við, sem Steinólfur Lárusson í Fagradal sagði um krabba þann í Mikkjálsmessubréfi sínu til Péturs heitins Þorsteinssonar, sýslumanns Dalamanna: „… ekki verður dírið kingreint af þessum sökum nema með ofbeldi.““
Það er reyndar gengist við því í greinargerð með frumvarpinu að um skatt sé að ræða, enda hæstaréttardómur fyrir því. Það er á miðri blaðsíðu 15 ef einhver skyldi hafa misst af því.
Hver er staða sjávarútvegsins hér á landi, frú forseti? Hann er bara í fullum blóma. Maður les og sér það, verður var við það, bara dagsdaglega næstum því, hversu framarlega við erum. Hér er fiskur nánast algerlega fullunninn í dag sem ekki var fyrir 30, 40 árum síðan og nýsköpun í greininni er í hæstu hæðum og hvert fyrirtækið á fætur öðru blómstrar af þeim sökum þar sem menn eru að leitast við að fullvinna sjávarafla og gera úr honum miklu meiri verðmæti heldur en hefur þekkst. Við erum framarlega í heiminum þar, frú forseti. Ég þarf ekki einu sinni að nefna öll þau fyrirtæki sem hafa skorað hvað hæst að því leytinu til og eru nýleg dæmi til um það.
Sjávarútvegsfyrirtæki hafa líka endurnýjað skipaflota sinn mjög ört síðustu árin þannig að nú eru skipin orðin tæknilega miklu öflugri og einnig eru þau umhverfisvænni eins og kröfur hafa verið gerðar um og erum við þar fremst í heimi líka, ekki bara vegna verðsins og nýsköpunar heldur líka vegna umhverfisins. Þetta vilja stjórnvöld — nú ætla ég að nefna orðið áhættutaka. Það er þekkt í lögfræðinni, eitt af því fáa sem ég man úr henni. Það er að taka áhættu, einhver tekur áhættu. Vegna þess að það er svo vinsælt að skattleggja einhvern annan en sjálfan sig þá ætla stjórnvöld að leggja skatt á sjávarútvegsfyrirtækin og aðallega þau stóru. Þá þarf ekki að lesa nema örfáar umsagnir um þetta frumvarp til að komast að því að sveitarfélög um allt land hafa miklar áhyggjur af því hvaða afleiðingar þetta frumvarp hafi, það sé ekki búið að reikna það út. Það er ekki búið að skoða það einu sinni. Menn skjálfa um allt land fyrir því að þetta gæti stöðvað þessa uppbyggingu sem ég nefndi hér áðan, uppbyggingu og fjárfestingu um land allt. Stjórnvöld ætla að taka þessa áhættu — fyrir hvað? Fyrir þessa, ég hef heyrt töluna 10 milljarða, ég hef nú heyrt tölur bæði lægri og hærri en þetta, allt niður í 7 og allt upp í 14 eða 15. Þau ætla að taka þessa áhættu. Er þetta eitthvað stórt í stóra samhenginu fyrir ríkisbúskapinn? Ég held ekki. Ekki ef maður horfir á þá tölu hvað skattspor sjávarútvegsins er mikið þar sem nefndar hafa verið tölur yfir 80 milljarða. Í fyrirtækjarekstri myndi maður kannski ekki fara út í svona, að fara að taka áhættu á því að auka tekjurnar um 10% eða minna en 10%, af sjávarútvegi altso, og taka þá áhættu að þetta myndi dragast saman og þetta myndi versna. Hvaða afleiðingar eru af því? Afleiðingarnar eru þær að tekjur munu minnka, minnka svo mikið að það verði tap raunverulega af þessum aðgerðum, þ.e. þær minnki það mikið að það upphefst ekki á þessum 7 eða 10 milljörðum sem á að sækja. Það er auðvitað stór spurning en menn vilja taka þessa áhættu og þetta er það sem ég nefni og heitir áhættutaka.
Annað sem ég ætlaði að nefna — tíminn flýgur frá mér, ég hefði nú helst viljað hafa klukkutíma — er að bera saman höfuðborg og landsbyggð. Það er auðvitað mjög athyglisvert að sveitarfélög úti á landi hafa lagst mjög þungt á árarnar með það að vara við þeim hraða sem er á þessu máli og því sem ekki er skoðað að fullu að þeirra mati, afleiðingum af frumvarpinu, þegar minna heyrist héðan úr höfuðborginni almennt séð. Ég nefndi í andsvari fyrr í dag að það er svolítið einkennilegt ef ríkisstjórnin ætlar að hafa það sem eitt af sínum fyrstu verkum að víkka þessa gjá sem er á milli landsbyggðar og höfuðborgar. Þeir ætla að stuðla að því að fara út í áhættutöku hvað varðar landsbyggðina til að sækja þarna einhverja 10 milljarða. Þau segja nú að þetta eigi að fara í innviði. Hvar er það? Hefur einhver fundið það? Ég var nú í löggunni í gamla daga, það þyrfti bara að reyna að leita að þessu og finna þetta, gera út leitarflokk. Sér þess einhvern stað, frú forseti, í hvað þau ætla að leggja pening? Er búið að nefna eitthvað? Er einhver brú eða hringtorg eða göng sem er búið að merkja þessu? Er það? Það eru bara örfáir stjórnarþingmenn hérna inni en ég er að reyna að skipta á milli við hvern ég er að tala. Liggur fyrir í hvað þetta á að fara, hv. þingmaður Suðurkjördæmis? Það vantar nú ýmislegt þar, vegi og brýr og göng. Liggur það fyrir? 10 milljarðar? Nei, frú forseti, þetta fer bara í gömlu hítina, sannið þið til, ef þið náið þessu þá fyrir það að það mun dragast saman á móti, eins og ég nefndi.
Áður en ég kemst í tímaþröng ætla ég aðeins að tala um — og sleppa ýmsu öðru sem ég ætlaði að nefna — reikniaðferðirnar hérna, frú forseti. Ég sé að það á að miða við verð í Noregi vegna þess að menn treysta ekki verðinu hérna heima einhverra hluta vegna. Gott og vel en hvað er verið að bera saman? Af því að ég var nú svo lengi í Vestmannaeyjum þá hef ég séð þessi kvikindi öll, makríl og þetta allt saman. Hvað er verið að miða við varðandi makrílinn? Það stendur hérna í frumvarpinu, 1. gr., með leyfi forseta:
„Aflaverðmæti eftirfarandi tegunda skal miðast við meðalverð fyrir hvern mánuð á hvert kílógramm samkvæmt opinberum gögnum um fiskverð frá fiskistofu Noregs.“
Þetta er nú reyndar alveg hlægilegt, frú forseti. Fiskistofa Noregs. Hvar erum við? Ef við erum eitthvað óánægð með einhverja skattlagningu á Eskifirði, á þá að miða við fasteignaverð í Reykjavík? Hvar erum við stödd? Þetta stendur í frumvarpinu. Svo stendur í c-lið, með leyfi forseta:
„Makríl á því tímabili sem íslensk skip stunda veiðar ár hvert og reiknistofn miðast við.“
Það á sem sagt að miða við einhverjar tölur frá Fiskistofu Noregs yfir sama tímabil og makríllinn er veiddur í Noregi og við erum að veiða hann hér á Íslandi. Það á að vera grunnur undir gjaldið. Hver er munurinn, frú forseti, á afurðum á Íslandi og í Noregi á sama tíma? Jú, á þeim tíma sem Íslendingar veiða sinn makríl, á sama tíma, júlí og ágúst yfirleitt, eru Norðmenn að veiða hann inni á fjörðum þar sem hann er að ganga til hrygningarstöðva og í 90% tilvika, frú forseti, er makríllinn í Noregi fluttur heilfrystur út. Á Íslandi? Þessi makríll sem við erum að veiða á sama tíma, frú forseti, er 40% settur í bræðslu. 40% af aflanum fara í bræðslu. Ég held að hv. atvinnuveganefnd eigi að skoða þetta svolítið betur. Þetta gengur ekki upp. Þetta verður að laga. Þú getur ekki borið saman, einhver sagði epli og appelsínur, þú getur auðvitað ekki borið þetta saman þegar Norðmenn eru að gera þetta allt öðruvísi með allt öðruvísi fisk. Á sama tíma, athugið það: Af hverju eru 40% af aflanum brædd á Íslandi? Af hverju er það, frú forseti? Ég er að tala um makríl enn þá. Ein ástæðan er sú að skipin þurfa að sigla mikið lengra með aflann heldur en norsku skipin. Síðustu tvö árin hefur þurft að sækja mjög langt, langt út fyrir landhelgi í mörgum tilvikum, norður í Smugu og þurft að sigla með hann til Íslands alla þessa leið þar sem hluti af honum skemmist. Hann er fullur af átu. Makríllinn í innfjörðum Noregs er ekki fullur af átu á þessum sama tíma, þannig að mikið af makrílnum á Íslandi er brætt vegna átuskemmda. Töluverður hluti af honum er flakaður. Afskurðurinn, hausarnir og slógin, fer í bræðslu líka. Það er verið að bera saman allt aðra hluti.
Þegar þetta frumvarp fer til nefndar þá fer ég fram á það og óska eftir því að hún taki þetta atriði — ég er nú reyndar með margar aðrar ábendingar en ég verð að gera það í seinni ræðu — til rækilegrar endurskoðunar, hvort það sé boðlegt að miða þarna við allt aðra hluti. Fiskistofa Noregs, frú forseti.