156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:56]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langaði aðeins að eiga orðastað við þingmanninn um þennan þátt sem þingmaðurinn kom reyndar inn á í ræðu sinni, eðlilega. Það eru þessar furðulegu yfirlýsingar um að þetta gjald skuli hækkað til að standa undir vegaframkvæmdum. Ætli það séu ekki milli 5 og 10 milljarðar í gangi á Vestfjörðum, sem verður sem sagt til vegaframkvæmda, og ætli það sé ekki annað eins hér á suðvesturhorninu, í tvöföldun aðalvega hér út frá höfuðborginni? Á einhverju tímabili erum við að tala um 30 milljarða á ári sem fyrirhugað er að setja í framkvæmdir á næstu fimm árum. Á sama tíma er verið að skera niður í menntamálum upp á 2,5 milljarða. Það eru gefnar yfirlýsingar um alls konar uppbyggingu í hjúkrunarheimilum sem ekki virðist vera stofnkostnaður fyrir heldur fyrst og fremst rekstrarkostnaður. Það er líka verið að vara okkur við að við munum þurfa að setja nokkra milljarða til viðbótar í varnar- og öryggismál. Það eru engar markaðar tekjur, eftir því sem ég best veit, í lögum um opinber fjármál. Þessi yfirlýsing, um að hækkun þessa gjalds eigi að fara í vegi, er hjákátleg þegar það eru stærri og meira aðkallandi verkefni sem bíða þessarar ríkisstjórnar og augljóst að fjármunirnir muni fara þangað — ekki eyrnamerktir, þeir eru bara úr stóru púllíunni.

Mig langaði aðeins að heyra skoðanir þingmannsins á þessu með hina sönnu mynd, þ.e. að það eru engir markaðir tekjustofnar. Menn geta verið með yfirlýsingar um hvert þeir ætli að setja peningana en þeir peningar fara auðvitað bara inn í ríkiskassann og svo er þeim deilt út þaðan í þau verkefni sem eru mest aðkallandi á hverjum tíma. Ekki satt?