156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Nei, ég tók þetta svona sem dæmi, það sem hendi var næst. Ég veit að hv. þingmaður þekkir þessi mál mjög vel hafandi verið samgönguráðherra um árabil fyrir ekki svo löngu. Það er af nógu að taka og það sem blasir við, og ég myndi kannski vilja benda á hér, af því að ég kom því ekki að í ræðu minni áðan, er að vandi ríkisstjórnarinnar er ekki á tekjuhliðinni. Vandi ríkissjóðs er á útgjaldahliðinni, það er vandinn. Ég held að stjórnarliðar, sem eru nú nokkrir hér í salnum, ættu aðeins að velta þessu fyrir sér. Vandinn er ekki á tekjuhliðinni, vandinn er á útgjaldahliðinni. Það eru útgjöldin sem þarf að taka á. Ég mun styðja stjórnarþingmenn í því. Þá verður borð fyrir báru að fá fé í alla þá innviði sem ég hef nefnt hér og einnig hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson.