veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir hans ágætu ræðu. Mönnum hefur verið tíðrætt um það í þessari umræðu upp á síðkastið að hér sé verið að verja almannahagsmuni gagnvart sérhagsmunum. Það er svona eitt af meginstefjunum í þessu að þetta sé sanngirnismál og réttlætismál og þar fram eftir götunum. Við erum búin að takast á um það hér hvort svo raunverulega sé. Ýmsum hliðum á þeim málum hefur verið velt upp. En mig langar að spyrja þingmanninn, þar sem hann hefur mikla reynslu í málefnum sjávarútvegsins og hefur starfað innan hans og hvaðeina. Hann er vel að sér í þessum málum öllum. Nú er sem sagt ætlunin og ekki bara áform um heldur búið að auka strandveiðar og það kemur sér vel fyrir þröngan hóp sem stundar slíkt. Þetta er gert á sama tíma og — eins og við viljum kalla það sem erum á öndverðum meiði við þetta frumvarp — verið er að refsa stóru útgerðunum sem hafa staðið í sínum áhætturekstri í gegnum árin og tekið öllu sem því fylgir og borið mörg hver góðan hlut frá borði. En mig langaði að spyrja: Finnst honum þetta ganga upp í því yfirskyni að verið sé að verja almannahagsmuni gagnvart sérhagsmunum? Þá er ég að vísa til þessarar ákvörðunar um strandveiðarnar, hvort þar séu ekki einmitt sérhagsmunir dálítið fyrirferðarmiklir.