veiðigjald.
Frú forseti. Strandveiðarnar. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir spurninguna. Það er nú þannig, frú forseti, að margt af því fólki sem stundar strandveiðar hefur ekki mikla atvinnuhagsmuni af veiðunum ef við orðum þetta bara á íslensku. Það er mjög mikið af fólki á strandveiðum sem hefur í raun og veru ekki mikla atvinnuhagsmuni af veiðunum. Þetta er svona leyndarmál sem flestir þekkja en er sjaldan viðurkennt. Menn hafa nú verið að segja að það væru einhverjir tannlæknar í Garðabæ sem væru að stunda þetta, einhverjir í þeim hópi. Það lýsir þessu kannski svolítið vel. Þetta er svolítið algengt. Ég er alls ekki að alhæfa. Auðvitað er fullt af fólki sem býr úti á landi í strandveiðum og vinnur við þetta en það eru, og ég veit það, mjög margir á strandveiðum sem hafa ekki mikla atvinnuhagsmuni af þeim. Það er bara staðreynd. Ég ætla að standa við það og ég þarf ekki að svitna neitt yfir því. Hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason svitnaði undan þessu en ég geri það ekki.
Þannig að mig langaði kannski til að fara í miklu skemmtilegri hlut og hafði ætlað mér það í minni ræðu hérna áðan en 15 mínútur líða hratt. Það er þetta með jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Það væri gaman að taka kortersræðu um það. Miðað við það sem einn stjórnarflokkurinn sagði um að það ætti að rukka þessar 15 fjölskyldur, næstum nafngreindar — það gengur auðvitað ekki.