156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:08]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég skil svarið þannig að verið sé með einhverju móti að vísa til þess að þarna sé í raun ráðist á mjög afmarkaðan hóp útgerðar og útgerðarfólks. Telur þingmaðurinn að þetta sé bara byrjunin á aukinni skattheimtu á atvinnulífið og að þess verði ekki langt að bíða að næstu stóru útflutningsgreinar, t.d. ferðaþjónustan eða aðrar atvinnugreinar, fái á sig svipuð högg og hér um ræðir? Er þingmaðurinn sammála því að þess verði e.t.v. ekki langt að bíða?

Mig langar líka aðeins að fá fram afstöðu þingmannsins til þess sem kom hér upp fyrr í dag (Forseti hringir.) í fyrirspurn til annars þingmanns, um hvort hér sé í rauninni viljandi verið að veikja íslenskan sjávarútveg.