veiðigjald.
Frú forseti. Nei, ég ætla strax að segja nei við þessu. Ég held að það sé ekki illur hugur á bak við þetta. Ég ætla ekki að halda því fram. Þá myndu nú kannski einhverjir svitna. En varðandi þessar 15 fjölskyldur sem formaður eins stjórnmálaflokksins nefndi einhvern tímann, og ég las, að það ætti að láta þær borga — það er alltaf mjög gaman að láta aðra borga, við þekkjum það. Ég ætla að lesa hérna aðeins upp úr hæstaréttardóminum um þetta atriði, með leyfi frú forseta:
„Með skírskotun til jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrár og að teknu tilliti til óskráðrar meðalhófsreglu íslenskrar stjórnskipunar má þó ekki ganga svo langt í skattheimtu gagnvart einstökum mönnum að þeim sé mismunað á ótilhlýðilegan hátt í samanburði við aðra. Nái skatturinn til fámenns hóps skattborgara kann það að veita vísbendingu um að of nærri þeim hafi verið gengið.“
Það er bara þetta sem ég hefði nú kannski viljað ræða miklu meira heldur en ég hef heyrt hérna í þessum sal núna.