veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ræðuna. Mig langar til að eiga við hann orðastað um fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja. Það hefur aðeins borið á því í umræðunni hér að það er verið að fetta fingur út í ríflegt eigið fé útgerðar og að útgerðin sé dugleg við að fjárfesta í öðrum atvinnugreinum en sjávarútvegi. Einhverjir telja það miður og ég átta mig kannski ekki alveg á því. En hver er afstaða þingmannsins varðandi það að sjávarútvegsfyrirtæki fjárfesti í öðrum greinum?
Svo langar mig líka til að spyrja hv. þingmann varðandi stærðartakmarkanir á útgerðarfyrirtækjum, en það kom reyndar ekki fram í frumvarpinu: Telur þingmaðurinn að það gæti komið til greina að bjóða upp á þann möguleika að sjávarútvegsfyrirtækin verði með stærri hlutdeild en 12% í þorski?